Hvað kostar ökunám?

Njáll Gunnlaugsson ökukennari kennir bæði á bíl og bifhjól. Langar þig til að læra á mótorhjól? Eða ertu að taka bílpróf? 

Hér finnur þú:

  • verðskrá fyrir bílpróf,
  • verðskrá fyrir allar tegundir af mótorhjólaprófum (A eða A2 bifhjólapróf, A1 bifhjólapróf og þegar þú ferð úr A2>A) 
  • og verð fyrir skellinöðrupróf  (AM létt bifhjól) 

Verðskrá

B

Bíll
401.402 kr
samtals
Ökuskírteini: 4.300 kr.
Ökutími 45 mín: 17.900 kr.
(15 tímar = 268.500 kr.)
Ökuskóli 1: 13.500 kr.
Ökuskóli 2: 13.500 kr.
Ökuskóli 3: 52.000 kr.
Kennslubók: 4.500 kr.
Bóklegt próf: 7.583 kr.
Verklegt próf: 19.619 kr.
Próftökugjald ökukennara: 17.900 kr.

A / A2

Bifhjól
270.602 kr
samtals
Ökuskírteini: 8.600 kr.
Ökutími 45 mín: 17.900 kr.
(11 tímar = 196.900 kr.)
Ökuskóli: 15.500 kr.
Kennslubók: 4.500 kr.
Bóklegt próf: 7.583 kr.
Verklegt próf: 19.619 kr.
Próftökugjald ökukennara: 17.900 kr.

A1

Bifhjól
163.202 kr
samtals
Ökuskírteini: 8.600 kr.
Ökutími 45 mín: 17.900 kr.
(5 tímar =89.500 kr.)
Ökuskóli: 15.500 kr.
Kennslubók: 4.500 kr.
Bóklegt próf: 7.583 kr.
Verklegt próf: 19.619 kr.
Próftökugjald ökukennara: 17.900 kr.
Fyrir A1 bifhjólapróf getur próftaki notast við eigið hjól og er kostnaður fyrir hvern tíma þá 11.900 kr. Fer þá heildarkostnaður niður í 127.202 kr. Ef viðkomandi er þegar með bílpróf þarf ekki ökuskóla og lækkar þá kostnaður niður í 111.702 kr. Ef notast er við sjálfskipt hjól í prófi takmarkast réttindi við sjálfskipt hjól.

AM

Létt bifhjól
154.621 kr
samtals
Ökuskírteini: 4.300 kr.
Ökutími 45 mín: 11.900 kr.
(8 tímar = 95.200 kr.)
Ökuskóli 1: 13.500 kr.
Kennslubók: 4.500 kr.
Bóklegt próf: 7.583 kr.
Verklegt próf: 17.638 kr.
Próftökugjald ökukennara: 11.900 kr.
Lágmarksfjöldi ökutíma samkvæmt námskrá eru 8 tímar. Verð miðast við að próftaki komi með eigin hjól í akstur. Ef notast er við sjálfskipt hjól í prófi takmarkast réttindi við sjálfskipt hjól.

A2 > A

A2 Bifhjól uppfært í A
64.019 kr
samtals
Ökuskírteini: 8.600 kr.
Ökutími 45 mín: 17.900 kr.
(upphitunartími)
Verklegt próf: 19.619 kr.
Próftökugjald ökukennara: 17.900 kr.
Þegar sá sem haft hefur réttindi á bifhjól í flokki A2 hefur náð 24 ára aldri eða haft réttindin í tvö ár eða lengur, má hann uppfæra prófið sitt í fullt A-próf með akstursprófi án bóklegs prófs.
Scroll to Top